Íslandsmet í trausti

Punktar

Hélt að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefði minnst traust allra Íslendinga. 7,6% þjóðarinnar bera til hans mjög mikið traust. Það er hálf Framsókn. Svo að við getum vonað, að flokkurinn minnki enn. En einn pólitíkus á landinu nýtur þó minna trausts en SDG. Það er Bjarni Benediktsson. 4,3% Íslendinga bera til hans mjög mikið traust. Neðar held ég, að ekki sé hægt að komast, þetta sé Íslandsmet. Það er bara einn fimmti af fylgi Sjálfstæðisflokksins. Svo að þar er enn af miklu að taka, áður en Bjarni er búinn að ljúka sér af við að rústa flokki sínum. Hann er þar á fullu gasi með nýjustu orðhenglum.