Öðrum þræði er leiðrétting skulda flutningur peninga frá fátækum til ríkra. Loddarinn segir, að verið sé að hlynna að þeim, sem voru hafðir útundan hjá síðustu ríkisstjórn. Í samræmi við annað er, að silfurskeiðungar hefur áhuga á að bæta stöðu annarra silfurskeiðunga. Afleiðingin er, að minna er aflögu til velferðar en verið hefði. Er þú yfrið nóg búið að þrengja að henni á alla vegu. Dæmigerð hægri öfgastjórn með auðgreifa að skjólstæðingum. Þeim, sem Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson telja jafningja sína. Í tæpt ár hefur fjármagn verið flutt upp píramídann og stéttaskiptingin verið hert.