Davíð Oddsson er martröð Sjálfstæðisflokksins. Ferillinn einstæður, dýrasti Íslendingur allra tíma. Einkavinavæddi bankana, gaf leyfi á IceSave og setti Seðlabankann á hvolf. Ætli hann hafi ekki alls kostað þúsund milljarða. Enn stjórnar hann flokknum. Með því að kalla ráðherra hvern fyrir sig á teppið og með tilskipunum í leiðara og staksteinum. Þvingar Bjarna til að þjónusta tudda Framsóknar. Flokkurinn á ekki séns í að endurheimta neitt fylgi meðan myrkur Davíðs grúfir yfir. Getuleysi í fjármálum loðir fast frá hruni. Gamli stórflokkurinn er varanlega breyttur í hóp sérvitringa hins róttæka teboðs.