Íslendingar eru pólitískir froskar. Geta blásið sig upp eins og blöðru, en síðan lekur loftið hratt. Fimm árum eftir hrun hleypti þjóðin bófunum aftur að stjórnarráðinu. Birtar eru skýrslur um óheyrilega þjófnaði og sviksemi. Engin þjóð hefur eins nákvæmar upplýsingar um siðblindu sína og Íslendingar. Skýrslurnar létu menn tútna út og svo lak loftið út og ekkert gerðist. Sett var í gang ferli, sem leiddi til nýrrar stjórnarskrár. Henni var svo fleygt út um gluggann og allt er enn við það sama. Og nú eru þingmenn undir forustu Ögmundar farnir að rægja þær fínu skýrslur. Pólitískir froskar eiga skilið Ögmund og bófana.