Nýjasta heimsmetið

Punktar

„Hagsmunaverðir svartnættisins“ vaða á súðum og fremstur fer þar Sigmundur Davíð. Hættir ekki að skandalísera fyrr en allur þorri fólks hefur misst trú á honum. Traust á honum er komið niður í 23%, sem er enn eitt heimsmet hans. Hættir ekki að skandalísera fyrr en meirihluti þjóðarinnar vill komast inn í Evrópusambandið. Þar væntir fólks skjóls fyrir gerræði siðblindra pólitíkusa á Íslandi. Fólki finnst ekki eðlilegt, að bófar geti logið sig til valda og síðan ekki staðið við neitt. Fólk heimtar aftur formfestu og siðferði í stjórnmálin. Að pólitískt svartnætti Sigmundar Davíðs víki fyrir birtunni.