Hrunið hefur verið krufið

Punktar

Þrjár nefndir hafa skilað þremur þúsund blaðsíðna skýrslum um hrunið, þar á meðal um Íbúðalánasjóð og sparisjóðina. Þessar skýrslur eru góðar, þótt sú síðasta sé dónalega kurteis. Allir geta lesið þessar skýrslur og sannfært sig um, að hér varð hrun. Ýmsir bera ábyrgð, þótt þeir séu nafnlausir í nýju skýrslunni. Taki fólk ekki mark á þessum skýrslum, getur það sjálfu sér um kennt, ekki höfundunum. Sé fólk upptekið af kostnaði þessara skýrsla, getur það ekki greint milli aðalatriða og aukaatriða. Eins og með stjórnarskrána, kunni fólk ekki að fylgja eftir lýðræði, getur það sjálfu sér einu um kennt.