Hjónum stíað sundur

Punktar

Geðbilun heillar stofnunar og heils ráðuneytis er komin á of hátt stig, þegar Hanna Birna er farin að stía hjónum sundur. Útlendingastofnun hefur lengi verið froðufellandi og innanríkisráðuneytið er litlu skárra. Þetta er svo sem ekki nýfengin geðveiki, hefur árum saman vakið furðu. Að svo miklu leyti sem ofsóknir á hælisleitendum eru fyrirskipaðar í lögum þá þarf að breyta þessum lögum. Merkilegt er, að Ögmundur Jónasson var innanríkisráðherra árum saman án þess að leggja fram frumvarp um siðvæðingu Útlendingastofnunar. Geðbilað hatur á hælisleitendum nær þannig út fyrir núverandi ríkisstjórnarflokka.