Davíðskur ólukkufugl

Punktar

Fylgið heldur áfram að hrynja af stjórnarflokkunum og ríkisstjórninni. Henni er jafnvel kennt um ótíðindi, sem hún ræður lítið við, svo sem verkfallasúpu. Hún er talin vera klaufskur ólukkufugl undir merki hrunverjans mesta, Davíðs Oddssonar. Stimpluð sem lygin og svikul langt umfram venju. Einkum fer ekki lengur milli mála, að hún er stjórn hinna ríku fyrir hina ríku. Vinnandi fólk sér enga málamiðlun eða milligöngu hjá ógæfustjórninni. Hún steypir sér á kaf í þjónkun við voldugustu hagsmunaaðilana. Og þetta sjá allir í heilu ári af klaufsku klastri og æðibunu. Fólkið sér, að stjórnin er Davíðskur ólukkufugl.