Þriðji og síðasti frambjóðandinn í efsta sæti Framsóknar í Reykjavík reynist vera furðu fáfróður rasisti með rörsýn á heiminn. Annar frambjóðandi, Hreiðar Eiríksson, sagði sig því af listanum. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir segir: „Ég er örugglega eini frambjóðandinn í Reykjavík sem hefur búið annars staðar en á Íslandi.“ Það er rangt, margir frambjóðendur bjuggu árum saman erlendis, einn í áratug. Fleiri voru rangfærslurnar. Það eru margar moskur í heiminum stærri en Zayed og það eru margar kirkjur í Abu Dhabi. Rörsýnin í rasistanum jafnast á við formann flokksins. Safnast þar saman allir fáfróðir?