Björt framtíð er í meirihlutaviðræðum til hægri og vinstri. Í Reykjavík við Samfylkinguna, í Kópavogi og Hafnarfirði við Sjálfstæðisflokkinn. Í samræmi við það, sem ég hef áður sagt. Flokkurinn stefnir ekki að öðrum breytingum á samfélaginu öðrum en þeirri, að öll dýrin í skóginum eigi að vera vinir. Ekki með eða móti orkuverum eða kvótagreifum, auðhyggju eða félagshyggju. Hins vegar vill hún sníða öfgana af þeim, sem hún starfar með. Þannig getur hún haft góð áhrif í bæjarstjórnum. Guðmundur Steingrímsson vill svo feta í spor Steingríms Hermannssonar, verða forsætisráðherra og vinsæll mannasættir.