Gott er, að borgarstjórn hætti að veita trúfélögum ókeypis lóðir. Getur samt ekki virkað afturábak um þegar veitta lóð til Félags múslima. Þegar einhverju er hætt, virkar það fram í tímann, ekki afturábak. Það ættu allir lagatæknar að vita, þótt þeir séu í Framsókn. Efnið í ranti oddvita listans var annað. Hafði farið um lönd múslima og bullaði um stöðu mála þar. Vont er, að fá allt skakkt í hausinn, þegar maður ferðast. Rant oddvitans seiddi aðra rasista úr skúmaskotunum. Það reyndist döpur hjörð, en fámenn, þótt fjölmenn sé í litlum flokki. Núna fagnar hjörðin því, að pólitíkusar telji hana vera húsum hæfa.