Ráðherra á prumpustiginu

Punktar

Jóhanna Sigurðardóttir kvartaði yfir, að ráðherrar fari ekki eftir siðareglum með því að þiggja laxveiðiferð. Gera mætti ráð fyrir, að ráðherrarnir reyndu að svara efnislega fyrrverandi forsætisráðherra. Nei, Bjarni Benediktsson flissaði bara og sagðist hafa hnýtt hvíthærða flugu, sem héti Jóhanna. Hann og Sigmundur Davíð eru raunar bara illa upp dregnir silfurskeiðungar, sem kunna enga mannasiði. Það er eins og helztu ráðherrar þessarar stjórnar hafi gert upp við sig, að mannasiðir séu óþarfir. Þeir geti bara hagað sér eins og gelgjustrákar á prumpustigi Gillz. Getur ekki einhver reynt að siða aulana?