Að undirlagi Sigmundar Davíðs virkjuðu Sveinbjörg Birna og Guðfinna Jóhanna rasisma einni viku fyrir kjördag. Viðbót vegna flugvallarvina hafði þá engin mælzt í könnunum. Í ljós kom, að rasistarnir tóku við sér. 2000-3000 manns bættust við kjósendur Framsóknar síðustu viku fyrir kjördag. Um miðja vikuna eftir talningu kom í ljós, að langtímaáhrifin mundu verða tvíeggjuð. Reyndir flokksmenn töldu skynsamlegt að juða flokknum úr faðmlögum við Skúla Skúlason og aðra aðdáendur Anders Breivik. Vonandi verða rasistar smám saman svældir út úr Framsókn. Og þjóðin fær önnur mál en að óttast og hata Grýlu nútímans.