Rasistar ræða skipulag

Punktar

Rasistar Framsóknar segjast bara hafa talað um skipulagsmál borgarinnar fyrir kosningar. Nokkur dæmi, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir: „Á meðan við erum með þjóðkirkju eigum við ekki að úthluta lóðum undir hús eins og moskur.“ Og Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir: „Borgarstjórnarflokkur Framsóknarflokksins mun leggja til, að lóðaúthlutun til byggingar Félags múslima á Íslandi verði dregin til baka, komist flokkurinn í borgarstjórn.“ Þegar kvartað var yfir múslimahatrinu, sagði hún: „Það er búið að taka þessa umræðu og snúa henni algjörlega á hvolf. Þetta snýst fyrst og fremst um skipulagsmál.“ Þriðji  frambjóðandinn hnykkir á skipulaginu, Íris Lind Verudóttir: „Við eigum að standa vörð um arfleifð okkar, menningu og trú á Guð“. Á fésbók dreifir hún kynóra falsfréttum um nauðganir og morð hjá múslimum. Þetta er snargalið lið.