Ósæmilega ráðuneytið

Punktar

Enn kemur innanríkisráðuneytið upp um sjúklegt hatur ráðamanna þess á fólki, sem leitar hælis. Hatrið á svertingjum er öllu meira en á múslimum. Nýjasta lygin er, að kona frá Nígeríu sé „eftirlýst“, eins og segir í tilkynningunni. Fyrir því er enginn fótur, ekki frekar en í fyrra máli af því tagi. Þá var í ráðuneytinu falsað skjal um, að annar svertingi væri viðriðinn glæpi. Þá kom í ljós, að aðstoðarmenn ráðherra framleiddu lygina og stungu í tilkynninguna. Líklega að undirlagi Hönnu Birnu ráðherra og með þegjandi samþykki Ragnhildar ráðuneytisstjóra. Innanríkisráðuneytið ber af öðrum í ósæmilegri stjórnsýslu.