Daglega fréttist af þekktu fólki, sem segir af sér ábyrgðarstörfum í Framsókn vegna kosningabaráttu flokksins í Reykjavík. Skoðanakannanir segja sömu sögu, Framsókn er eftir kosningarnar eins fámenn og fyrir þær. Hefur losað sig við frjálslynt miðjufólk og aflað rasistakerlinga í staðinn. Baráttan í Reykjavík snerist um fólsku múslima erlendis, nauðungarhjónabönd og fjölgun múslima á Vesturlöndum, dæmigerð rasistamál. Sveinbjörgu var sama um áhrif hatursins á óttaslegin börn friðsamra múslima. Sigmundur lét sér vel líka, að hún fiskaði í sínum drullupytti. Framsókn uppskar eins og hún sáði, fyrirlitningu þjóðar.