Óvissir sökudólgar

Punktar

Hef vonda og sumpart bitra reynslu af tilraunum CIA og einkum NATO til að stýra almenningsáliti vesturlanda. Traust mitt á vestrænum fréttamiðlum er ekki heldur grunnmúrað. Trúi varlega á illsku Rússa og Pútíns vegna morðsins á farþegum þotu yfir austurhluta Úkraínu. Vil heldur bíða og sjá, hverju fram vindur. Þotan var á rangri flugleið í rangri flughæð. Þarna eiga ekki að vera þotur og það vekur grunsemdir. Undanbrögð uppreisnarmanna í Úkraínu eru samt ekki trausts verðar og orð Pútíns eru auðvitað ekki einnar rúblu virði. Við skulum í bili láta duga að harma morðin, en fresta yfirlýsingum um sökudólga.