Flótti undan ráðherra

Punktar

Grunsamlegt er brotthlaup Stefáns Eiríkssonar úr stóru embætti lögreglustjóra í hlutverk deildarstjóra hjá borginni. A flótta undan Sjálfstæðisflokknum, er réði hann yfirmann löggunnar? Tengist þetta rannsókninni á leka á vegum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur? Rannsóknin ljóstraði upp um lygar ráðherrans á alþingi og um tilvist plaggsins fræga í ráðuneytinu. Opinberaði fyrir fólki, að Hanna Birna gerði Ragnhildi Hjaltadóttur ráðuneytisstjóra að fótaþurrku. Varð Hanna Birna að fá nýjan lögreglustjóra til að rannsaka mál, sem í útlandinu hefði skolað ráðherranum úr embætti? Hanna Birna stinkar því miður langar leiðir.