Eymd verkalýðsrekenda

Punktar

Eymd íslenzkra verkalýðsfélaga er með ólíkindum. Láta viðgangast, að greitt sé jafnaðarkaup og á annan hátt farið niður fyrir umsaminn taxta. Gvendur jaki hefði komið á vettvang með sitt lið og lokað sjoppum siðblindingjanna. En verkalýðsrekendur nútímans rísa ekki upp af rassinum. Yndi þeirra er að sitja fundi lífeyrissjóða, reykja þar vindla og drekka koníak með fulltrúum  fyrirtækja. Eru fyrir löngu orðnir samdauna viðsemjendunum, hafa tekið upp hugsun þeirra og orðfæri. Gylfi Arnbjörnsson er dæmigerður verkalýðsrekandi. Launafólk: Skúrið pöddur Einingar af ykkur, lokið Lebowski Bar með handafli.