Hanna Birna er trúlega meðsek Gísla Frey. Það eru dæmigerð hennar vinnubrögð, sem hann var dæmdur fyrir. Hún er hamslaus af frekju og yfirgangi. Arngrímur Ísberg dómari leit ekki á hennar anga málsins. Tók bara játningu Gísla Freys góða og gilda eins og dómarar gerðu á Sikiley mafíunnar í gamla daga. Ætti þó að hafa reynslu af marklausum játningum. Marklausum dómi hans ber að áfrýja. Ekki til að fá strangari dóm yfir Gísla Frey, heldur til að ná fram rannsókn á aðild Hönnu Birnu. Efni í þá skoðun mun koma fram í greinargerð umboðsmanns alþingis um samskipti hennar og Stefáns Eiríkssonar, sem flúði svo úr starfi.