Wow og Primera hata þig

Punktar

Wow Air elskar ekki farþegana eins og ætla mætti af auglýsingum. Raunar hatar Wow Air farþegana. Neitar að standa við skuldbindingar flugfélaga samkvæmt fjölþjóðasamingi, sem Ísland er aðili að. Reyni farþegar að fá skaðabætur fyrir óhóflegar seinkanir, segir Wow bara: „Nei“. Árið 2014 tók Flugmálastjórn fyrir tæplega þrjátíu kærur farþega og Wow tapaði þeim öllum. Annað flugfélag hatar líka farþega sína. Það er Primera, sem tapaði líka öllum kærum í fyrra, samtals tólf málum. Þau tregðast líka við að segja frá töfum. Önnur flugfélög standa flest sína pligt. Bezt hagar sér Icelandair, sem enga kæru fékk á sig í fyrra.