Frá Kolviðarhóli við Skarðsmýrarfjall að Vindheimum í Ölfusi.
Leiðin liggur samsíða Þrengslum um þremur kílómetrum austar í landinu. Sérstakrar varúðar þarf að gæta við þjóðveg 1 vegna hraðrar bílaumferðar.Þetta er grösug leið, sem hentar hestum. Hér var þjóðleiðin yfir Hellisheiði fyrr á öldum, þangað til bílvegir tóku við, fyrst um Kamba og síðan einnig um Þrengsli.
Förum frá Kolviðarhóli suður með Litla-Reykjafelli, bögglumst yfir þjóðveg 1 um Hellisheiði. Síðan beint suður að austanverðu við Stóra-Meitil, um Lágaskarð milli Stóra- Meitils að suðvestan og Lákahnjúks að norðaustan. Síðan að vestanverðu við Stóra-Sandfell, þar sem leiðin nær 300 metra hæð. Þá vestan við Nyrðri-Eldborg og síðan að vestanverðu við Syðri-Eldborg. Þar förum við fyrst þvert austur og síðan suður og niður í Sanddali og milli Innbruna og Eldborgarhraun að vestanverðu og Lönguhlíðar að austanverðu, austan við Krossfjöll að Raufarhól og Raufarhólshelli. Förum síðan suðsuðvetur ofan af heiðinni niður að Þrengslavegi við Fjallsenda í Ölfusi. Einnig er unnt að fara áfram suðaustur undir Lönguhlíð og loks um Skóghlíð niður í Ölfus.
16,3 km
Árnessýsla
Nálægar leiðir: Þrengsli, Hellisheiði, Skóghlíð, Hellisheiði, Hengladalaá, Ölkelduháls, Ölfusvatnsá.
Skrásetjari: Jónas Kristjánsson
Heimild: Kortavefur LH