Þegar allt er í steik, hugga afneitarar sig við ímyndaðan vanda. Komið hefur í ljós, að kjósendur Framsóknar verða fyrir ónæði af erlendum ferðamönnum. Telja sig ekki fá pláss á veitingahúsum og kaffihúsum af þeirra völdum. Gaman hefði ég af að sjá þá kjósendur ráfa árangurslaust milli staða, þeir eiga varla betra skilið. Kannski líta þeir svona óþriflega út, með mosann í skegginu. Auðvitað getur verið hætta á, að hinir hræðilegu útlendingar ávarpi kjósendur Framsóknar á öldurhúsum. Það gæti talizt vera hinum síðarnefndu andlegt áfall. Alltaf er heilsuspillandi, þegar menn mæta augnaráði frá eitraðri Evrópu. Hvar er Guðni?