Flokksþing Undralands er haldið um helgina. Fram kom, að sérfræðingar á vegum hrægamma væru búnir á sálgreina formanninn. Hefðu borgað 18 milljarða til að hafa flesta lagatækna, almannatengla og nokkra blaðamenn og álitsgjafa á kaupi. Við að ofsækja Sigmund Davíð. Að gjaldeyrishöftin væru á útleið í vor, þvert ofan í varfærni Bjarna Benediktssonar. Fundarmenn Undralands voru sælir með, að SDG hefði efnt öll kosningaloforðin. Þar á meðal tekið 300 milljarða af vondu hrægömmunum. Miklir menn erum við, sögðu vænisjúkir fundarmenn. Og mestur allra er hinn mikli og ástsæli næstum-doktor í skipulagsfræðum, sem enn er risinn úr rekkju.