Heilaþvottur Birgittu

Punktar

Greiningardeild ríkislögreglustjóra vill heilaþvo pírata, anarkista og aðra róttæklinga. Njósna um þá með svokölluðum forvirkum rannsóknarheimildum. Skapa „félagsleg úrræði“ fyrir þá, svo að þeir verði frekar til friðs. Sérstaklega hættulegur ógnvaldur ríkisins er talin vera Birgitta Jónsdóttir alþingismaður. Makalaust er að horfa inn í örvæntinguna í skýrslu Haraldar Johannessen. Ég hef lengi talið hann vera galinn að hætti Allen Dulles. En Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður talar loflega um vænisjúku skýrsluna. Ógæfumaðurinn Ögmundur Jónasson hélt sem ráðherra hlífiskildi yfir ríkislögreglustjóranum og endurréð hann.