Klúður á klúður ofan

Punktar

Klúður ferðamálaráðherrans er orðið hrikalegt. Gat ekki knúið náttúrupassann gegnum alþingi. Hafði þó feikilega mikið fyrir honum, hagaði sér eins og naut í flagi, tók engum sönsum. Þjösnaðist með hirð sína um land allt til að afla fylgis, en ekkert gekk. Tók þá annað jafnvitlaust til bragðs, ætlar að leggja gjaldið á skattgreiðendur. Að vonum er ferðaþjónustan sátt, því að það sparar henni brýna hækkun á vaski og gistináttagjaldi. Hvort tveggja er rökrétt og rakin leið, sem plagar ekki skattgreiðendur. En Ragnheiður Elín Árnadóttir hefur reynzt óhæf um að koma saman heilli rökréttri hugsun. Hún er bara bjáni.