Davíð er allra verstur

Punktar

Bjarni Ben er bófi og Sigmundur Davíð er bjáni. Hafa sýnt, að þeir eru ófærir um að reka íslenzka ríkið. Þeir eru í neðsta klassa með Ólafi Ragnari, sem hékk utan í útrásarvíkingum og miðaldagreifum. Enginn þeirra stenzt þó samanburð við Davíð Oddsson. Sem forsætisráðherra innleiddi hann ranglátt og mannfjandsamlegt þjóðfélag. Sem seðlabankastjóri var hann með hreinu óráði og hélt sig klófesta 620 milljarða lán frá Pútín. Sem ritstjóri Moggans fer hann með furðulegusta skáldskap um menn og málefni. Minni sögur fara af honum sem skrifstofustjóra Sjúkrasamlags Reykjavíkur. Betur hefði hann verið áfram í því pilsfaldastarfi.