Heilalausa umræðan

Punktar

Margt er það, sem ég skil ekki. Af hverju er skárra að setja innkaupabann á vörur frá herteknum svæðum Palestínu en frá Ísrael sjálfu, gerandanum? Einhver hræsni þarna? Af hverju eru margir æstir út í borgarstjórann, mundu þeir fagna þjónustubanni á hvalveiðibáta til að gleðja útlenda fjármagnseigendur? Einhver hræsni þarna? Af hverju heitir það nazismi að standa í viðskiptaaðgerðum gegn Ísrael? Einhver hræsni þarna? Af hverju er andúð á gerðum Ísraels sagt vera gyðingahatur? Einhver hræsni þarna? Er hálft Ísland orðið að geðveikrahæli út af innantómum flökkusögum um tjón á viðskiptavild?