Forstjóri nýrrar og óþarfrar Stjórnstöðvar ferðamála segist ekki hafa tengsli við Sjálfstæðisflokkinn. Er samt fulltrúi á Landsfundi og klíkubróðir ýmissa valdamanna flokksins. Fær tvær milljónir á mánuði fyrir að leita að lausnum á öngþveiti ferðamála. Kostnaður er 140 milljónir á ári. Allir vita lausnirnar, nema Ragnheiður Elín ráðherra. Hún böðlaðist árangurslaust í ár á hlægilegum náttúrupassa. Allir nema hún vita, að vantar klósett, stíga og stæði. Markmið klúðursins er að veita óvinnufærum landsfundarmanni feitan bita. Allt er þetta í þekktum stíl aldraðs bófaflokks. Hvar eru þeir drullusokkar, sem kusu þetta ógeð?