Hef litla samúð með löggum, þótt sumir þar séu að ganga úr Flokknum sínum. Þar fer fúlt lið, sem lætur etja sér til óhæfuverka fyrir siðblindingja, til dæmis gegn gamlingjum í Gálgahrauni. Er á fullu við að framkvæma fíkniefnabann, sem er á útleið í siðuðum ríkjum. Hefur sjaldnast tíma til að sinna almenningi, svo sem í heimilisofbeldi. Þessir óánægðu Flokksmenn geta bara haft sína gremju út af fyrir sig. Án þess að fólk út í bæ þurfi að hossa undir þeim. Geri mér grein fyrir, að samkvæmt könnunum ber fólk traust til lögreglunnar. Ég tek ekki þátt í því. Vilji bófaflokkarnir ekki borga varðhundum sínum, er það ekki mitt mál.