Hryðjuverkið í Svíþjóð var ekki framið í skjóli trúar. Hinir mjög svo hötuðu múslimar voru ekki að verki. Morðinginn var hægri öfga múslimahatari, afkvæmi firringar í vestrænu samfélagi. Slíkir eru ekki búnir til í kirkjum eða moskum. Verða til í annars konar hópum bjálfa og í einrúmi. Þegar grannt er skoðað, er trú ekki meginþáttur í vestrænum óhæfuverkum. Auðvitað er til vandræða, þegar klerkar wahabíta eða salafista trylla veiklundaða. En það er bara sjaldgæft. Og líka er sjaldgæft, að kristnir öfgapredikarar séu þannig til vandræða. Líf í grimmu samfélagi er sumum erfitt og við þurfum þar að hafa hemil á hægri öfgum.