Niðurstaða stöðugleikadæmisins er sú, sem búist var við. Gefinn nokkur hundruð milljarða afsláttur frá 800 milljarða stöðugleikaskatti til að fá slitabúin til að greiða tæplega 400 milljarða stöðugleikaframlag. Helmings afsláttur er of mikil góðsemi, sem lélegir pólitíkusar reyna að fela með því að taka ýmislegt óskylt inn í dæmið. Þannig vinnur alltaf Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hann elskar sjónhverfingar. Seðlabankinn var látinn taka á sig að gefa gæðastimpil á niðurstöðuna. Málinu er lokið, sem er jákvætt. Sömuleiðis er jákvætt, að öll upphæðin verði notuð í að lækka skuldir ríkisins, sem urðu til í bankahruninu.