Heimavarnarlið Sigmundar Davíðs í InDefence jarðar heldur betur heimsmeistarann sinn í fjármálum. Nýjasta sjónhverfing forsætisráðherra gerir illt verra, segir Sveinn Valfells. Það einungis spurning hvenær, ekki hvort það mun hafa neikvæð áhrif á gengi íslensku krónunnar. Vandinn sé óleystur þrátt fyrir fullyrðingar. „Vandinn er skilgreindur upp á 815 milljarða, … slitaframlögin ekki upp á nema 379 milljarða, eftir virðast standa 400 milljarðar af krónueignum sem kunna að fara úr landinu og hafa þannig neikvæð áhrif á íslensku krónuna“, segir Sveinn. Þetta er einfalt rothögg á valdhafa. Hengingarólin verður áfram okkur um háls.