Ekkert hefur gerzt, sem kallar á byssur í löggubíla. Hér er löggan einfær um að drepa menn, án þess að hafa vopn í bíl. Kom í ljós í desember 2013. Engir eru hér hættulegir nema löggurnar. Trúarnöttarar drepa ekki fólk, hvorki kristnir né aðrir. Handtökuaðferðir löggunnar hafa hins vegar náðst á myndskeið. Og þar þarf ekki að bæta við byssum. Skæðasti nöttarinn er Ríkislögreglustjórinn (með ákveðnum greini), sem hótar fólki á vínbörum. Fráleitt er, að Nordal geti án pólitískrar umræðu látið Stjórann hafa sjálfdæmi um byssunotkun löggunnar. Sjálfdæmi undir geldu og gagnslausu innra eftirliti kerfiskarla, sem segja já.