Fer sér að voða

Punktar

Kári Stefánsson er hrokagikkur og þrasari. Um leið er hann fagmaður á sínu fagi og veit meira um heilbrigðismál en Kögunarbarnið. Kári hefur gert margt gott á sínum ferli, meðal annars gaukað rándýru tæki að Landspítalanum. Kögunarbarnið er hins vegar ekki bara próflaust, heldur hæfileikalaust með öllu. Pabbi þess keypti stjórnmálaflokk handa því og síðan ofsalaug barnið sig inn á ginnkeypta kjósendur. Höfum síðan þurft að þola heimsins versta forsætis í hálft þriðja ár. Kögunarbarnið vinnur lítið og þrasar mest, þá sjaldan það er á ferli. Þegar það er komið í ritdeilu við Kára, er hætt við, að það fari sér að bráðum voða.