Við höfum í upphafi árs séð afleiðingar af samræmdri þöggun valdhafa, lögreglu og fjölmiðla víða í Evrópu. Þagga átti skuggahliðar á skriðu einnar milljónar múslima. Frægast var þetta í Köln, þar sem lögreglustjórinn var rekinn fyrir rest og ZDF baðst afsökunar. Það tók veruleikann viku að síast út. Víðs vegar um Evrópu fatta konur, að þær geta ekki verið á almannafæri án fylgdar. Munu ekki sætta sig við yfirtöku miðaldastráka á almannasvæðum. Alla vikuna reyndu fjölmenningarkarlar að vefengja réttar fréttir og saka okkur um rasisma. Þeim tókst bara að gera „rasista“ að sæmdarheiti og „fjölmenningu“ að skammaryrði.