Enginn friður er fyrir banksterum á Kvíabryggju. Fjölmiðlar magna vælukór yfir meðferðinni á þeim. Að auki vinnur her lagatækna og ættingja við að róta upp meðvirkni. Allt fer á hvolf, þegar gert er grín að þeim í skopþætti sjónvarps. Banksterarnir ættu frekar að biðjast afsökunar á tilveru sinni. En þeir eru forhertir, skammast sín ekkert og munu taka upp fyrri glæpi, þegar þeir losna. Siðblindingjar, sem hafa eyðilagt líf þúsunda. Hafa fengið gervidóma, sem eru hlægilega lágir í samanburði við þá, sem stálu bjórkippu eða kjötlæri. Ég bið fjölmiðla, lagatækna og ættingja að hjálpa við að láta þá falla í gleymsku.