Fróðlegt. Ólafur Ragnar Grímsson tengist aflandsfélagi á Tortóla. Í viðtali við Christiane Amanpour á CNN sagði hann „No, no, no, no, no“. Síðan kemur í ljós, að forsetafrúin á föðurarf í aflandsfélagi á Tortóla. Sagði sig frá íslenzku lögheimili og fluttist til London til að höndla með fjármál sín. Móðir hennar veit ekkert um félagið og forsetafrúin sjálf veit ekkert um rosalegar árlegar tekjur sínar af Tortóla. Sinnuleysi um fé. Líkist íslenzkum tortólingum, sem muna fátt um félög sín, annað en að fullir skattar hafi verið greiddir. Eina forsetafrú heims, sem ekki greiðir skatta í landi forsetans. Ísland í dag.