Kristín Völundardóttir er heimsk og illa innrætt. Hvað eftir annað eru ákvarðanir forstjóra Útlendingastofnunar gerðar afturreka í Innanríkisráðuneytinu. Steininn tók þó úr, þegar hún hugðist reka velgerðamanninn Bala Kamallakharan úr landi eftir að hafa búið hér í rúman áratug. Tími er kominn til að taka forstjórann úr sambandi og koma henni fyrir á þar til bærri stofnun. Síðan þarf að reka þessar sjötíu lögfræðimenntuðu íhaldskerlingar hennar, sem ekkert gera af viti. Loks má læsa Útlendingastofnun og setja þar upp símsvara, sem segir: „Hunzkastu heim, helvítis útlendingurinn þinn“. Flytja síðan símtalið yfir í Innanríkisráðuneytið.