William Pfaff segir í International Herald Tribune, að bandarískir ráðamenn séu ekki hóflega lygnir að hefðbundnum hætti stjórnmálamanna, heldur lifi þeir beinlínis og hrærist í lygi, í innanríkismálum jafnt sem utanríkismálum. Ásamt bandarískum fjölmiðlum beri þeir ábyrgð á, að bandarískir kjósendur og bandarískir þingmenn geri sér kolrangar hugmyndir um flest, sem skiptir þá máli. Með þessu sé verið að eyðileggja límið í þjóðfélagi lýðræðis.