Sakna sögulegs samhengis

Punktar

Af því að við munum ekki vel, hver lagði áherzlu á hvað, þegar síðast og næstsíðast var rifizt um dóma í málum öryrkja, þarf einhver fjölmiðill að rifja söguna upp fyrir okkur. Allir málsaðilar segja nýja dóminn vera sigur fyrir sig, sérstaklega forsætisráðherra, sem þó er enn með hund út í Hæstarétt. Hlutverk fjölmiðla er meðal annars að skýra sögulegt samhengi í fréttum líðandi stundar. Að öðrum kosti átta notendur fjölmiðla sig ekki á því, hvað fréttirnar þýða í raun og veru. Hafi einhver hæfur fjölmiðlungur rækt skyldu sína, hefur það farið fram hjá mér.