Kain öfundar Abel enn

Punktar

George Monbiot segir í Guardian, að Vesturlandabúar hati sígauna meira en aðra sérvitringa, af því að þeir öfundi þá um leið, rétt eins og Kain öfundaði Abel og drap hann. Í öfundinni og hatrinu felist löngun hins staðbundna til að öðlast frelsi hirðingjans, sem enn blundi í beinum og sinum þeirra, sem eiga að telja til farandfólks svo sem hundrað kynslóðum aftur í ættir.