Sigurvegarinn tapar

Punktar

Í bardaganum um DV mun sigurvegarinn tapa. Ef Fréttablaðið eignast DV, mun það tapa stríðinu við Morgunblaðið. Ef Morgunblaðið eignast DV, mun það tapa stríðinu við Fréttablaðið. Að axla DV felur í sér svo mikla hugsana-, skipulags- og tímabyrði til viðbótar fjárhagsbyrðinni, að það sogar athyglina frá hinni raunverulegu samkeppni milli Fréttablaðsins og Morgunblaðsins. Sigurvegarinn verður blaðið, sem minna lætur truflast af ástæðum, sem varða ekki beint samkeppnina sjálfa. Eini öruggi taparinn er Landsbankinn, sem heldur áfram að tapa, hvernig sem viðrar. Enda er það við hæfi, hann framleiddi vandamálið fyrir tveimur árum.