Brent Staples segir í New York Times, að Los Angeles sé að klofna annars vegar í læst og vopnum varin hverfi fyrir ríkt og hvítt fólk og hins vegar í fátækrahverfi fyrir hrærigraut fjölþjóðanna fyrir utan. Borgin sé smám saman að breytast í hryllingsmynd úr frægum framtíðar-bíómyndum á borð við Blade Runner.