Gin ljónsins

Punktar

Vanhugsað er að senda Íslendinga til starfa í Afganistan um
þessar mundir. Þetta er enginn Balkanskagi, þar sem hjálparfólk safnar blómvöndum, heldur einn hættulegasti staður heims, vígvöllur vestræns hernámsliðs, grimmra herstjóra og framleiðenda meirihluta alls ópíums í heiminum. Hatursfullir Afganar gera lítinn greinarmun á hernámsliði Vesturveldanna og borgaralegum starfsmönnum, sem eru beint eða óbeint á vegum þess, þar á meðal flugumferðarstjórum. Íslenzka utanríkisráðuneytið getur ekki ábyrgzt líf og limi fólks, sem fer til Afganistan á þess vegum eða Nató. …