Að hætti íslenzkra smælingja nutu flestir skólafélagar seðlabankastjórans tveggja tíma aðildar að spillingu yfirstéttarinnar í tilefni stúdentsafmælis. Þeirra maður var orðinn seðlabankastjóri. Loks var röðin komin að þeim að fá að njóta aðildar að illri meðferð opinberra fjármuna. … Að minnsta kosti sýndist mér annar árangur verða harla léttbrýnn, þegar þáverandi viðskiptaráðherra lét freyðivín skattgreiðenda fljóta í afmælisfagnaði miðaldra stúdenta. “Þetta er lífið” sögðu menn. …