Vegna sameiginlegs áhugamáls er vel við hæfi, að landsfaðir vor fari í opinbera heimsókn til landsföður Úkraínu. Hvorki Davíð Oddson né Leoníd Kuchma geta dulið gremju sína í garð fjölmiðla, sem sitja ekki og standa eins og landsfaðirinn skipar fyrir. Kuchma hefur frá mörgu að segja á því sviði. … Það er líka gott, að einhver útlendingur gleðji Kuchma um þessar mundir, því að fáir verða til þess. …