Maturinn er frábær í fásinninu á kvöldin á Vox, nýjum matsal Nordica hótels. Verðlaunakokkar hafa skipað staðnum í eitt af allra efstu sætum matargerðarmustera landsins, studdir látlausri þjónustu úrvals fagmanna, sem vita allt um mat og vín staðarins. … Minna er varið í ofurvinsælt 2100 króna hlaðborð í hádeginu, þar sem bragðgæði víkja fyrir skreytilist. Í biðröðum hanga þar unglingar úr viðskiptalífinu og ráfa um með diska sína. …