Doktor Atkins

Punktar

Megrunarkóngurinn Robert Atkins var 117 kíló, þegar hann dó. Það sannar ekki, að kúr hans sé óhollur, því að hann dó af slysförum 72 ára gamall. Hann hefði getað orðið 80 ára með sín 117 kíló. Hins vegar sýnir þyngdin, að aðferðin virkaði ekki til lengdar sem megrunarkúr fyrir hann sjálfan. … Í venjulegri bókabúð í Bandaríkjunum eru í boði yfir hundrað mismunandi titlar megrunarbóka með yfir hundrað mismunandi kúrum. Ef ein af þessum aðferðum virkaði, væru ekki allar þessar hundrað bækur á boðstólum. Þetta eitt segir raunar allt sem segja þarf um árangur megrunarkúra yfirleitt. …