Innfluttir Indverjar

Punktar

Þverspyrna læknafélagsins gegn innflutningi á indverskum lækni stafar ekki af ótta við, að hann kunni ekki fagið. Þvert á móti óttast félagið, að í ljós komi, að sá indverski sé hæfari en þeir, sem fyrir eru. Eins og í Bretlandi, þar sem hámenntaðir Indverjar eru að taka við læknisþjónustunni. … Bretar hafa góða reynslu af Indverjum á fleiri sviðum. Þeir eru að taka við hlutverki kaupmannsins á horninu, hugsa vel um viðskiptavininn og hafa alltaf opið, þegar hann kærir sig um að verzla. Þetta er iðið og heilsteypt fólk, sem vinnur sig ört til vegsemdar og virðingar í brezku samfélagi. …